The DRA Crest
Dual Recovery Anonymous  
    Home  Find a DRA meeting in your area Finna fund  Members Services Member Services  DRA Books and Recovery Gifts Bookstore

 Andleg vídd

Velkomin/n í DRA
DRA Inngangsorð

Tólf reynsluspor

Tólf erfðavenjur

Að sættast við breytileikann

Að byrja í tvíþættum bata

Questions &
Answers

Meeting Format

History of DRA

The DRA Crest

Bookstore
 
Finna fund
Membership Services

Medication Issues

Register Meetings

Personal Stories

International News

Upcoming Events

Recommend This Site to a Friend

Downloads, PDFs

DRA félögum er frjálst að túlka og leggja sinn skilning í reynslusporin tólf á þann hátt að mæti þörfum þeirra fyrir tvíþættan bata. Félögum er frjálst að þróa sína eigin trú og lífsstíl til að styðja við tvíþættan bata sinn.

Andlegar skoðanir: Sumir félagar í DRA flétta andlegum eða trúarlegum skoðunum inn í tólf spora vinnu sína. Þeir kunna að líta svo á að mynd þeirra af æðri mætti sé byggð á andlegum meginreglum. Þeir eru sáttir við hefðbundna nálgun að tvíþættum bata sem felur í sér bæn og hugleiðslu.

Aðrar skoðanir: Aðrir félagar hafa komist að þeirri niðurstöðu að annars konar nálgun henti betur fyrir þeirra tvíþætta bata. Þeir kunna að vera ósáttir við andlegar meginreglur og iðkun bænahalds og hugleiðslu.

Það kunna að vera nokkrar ástæður fyrir því að DRA félagi velji aðra nálgun:

  • DRA félagi kann að vera efahyggjumaður eða trúleysingi. Hugmyndin um andlegar meginreglur kann að stangast á við skoðanir hans eða heimsmynd.
  • DRA félagi kann að hafa neikvæða trúarlega reynslu að baki í lífi sínu.
  • DRA félagi kann að hafa tekið þátt í sértrúariðkun eða stundað ótæpilega neyslu geðvíddarlyfja.
  • DRA félagi kann að vera haldin geðsjúkdómi með ofskynunareinkennum s.s. ofheyrn eða ofsjónum og hugartruflunum sem tengjast trúarlegum eða andlegum myndum og þemum.

DRA félögum er frjálst að þróa og fylgja ólíkum aðferðum við tólf spora bataáætlunina. Hugmyndin um æðri mátt getur innihaldið eitthvert eða öll eftirtalinna atriða:

  • Reynslusporin tólf
  • DRA fundir og samtökin
  • Að fylgja lífstílnum sem kenndur er við G.K.S. Góða Kerfisbundna Stefnu
  • Heilsuáætlun (hæfilegur svefn, mataræði, hreyfing, notkun geðlyfja til að hafa stjórn á einkennum)
  • Ráðgjöf og stuðningur


DRA félögum er frjálst að vinna með fleiri en einn æðri mátt. DRA félögum er líka frjálst að breyta hugmynd sinni um æðri mátt þegar tímar líða.

DRA félagar þurfa ekki að takmarka sig við eina einstaka hjálpræðisuppsprettu. Það eru margar leiðir við að skilgreina æðri mátt eða mátt hjálpræðis. Sumir félagar nota hefðbundnar trúarskoðanir og aðrir ekki. Félagar kunna að líta á meðferðaraðila sinn, ráðgjafa, trúnaðarmann/trúnaðarkonu, DRA hóp og sérhverja aðra þá hjálpræðisuppsprettu sem þeir meta mikils sem sinn persónulega æðri mátt eða hjálpræðismátt. DRA félagar leggja ekki dóm á hvernig aðrir skilgreina æðri mátt, andlega reynslu eða andlega vakningu. Þessi hugtök eru háð skynjun og skilningi hvers og eins. Það er hins vegar mikilvægt að félagar velji sér æðri mátt eða hjálpræðismátt sem þeir treysta sem sinni persónulegu hjálpræðisuppsprettu – hugmynd sem þeir telja að minnsta kosti að eitthvað vit sé í og sjái þeim fyrir umhyggjusömum, jákvæðum stuðningi.

Að lokum þetta. Þó að í flest öllum bókum sem tólf spora samtök hafa gefið út, þar á meðal Dual Recovery Anonymous samtökin, sé að finna orðin "Guð" og "æðri máttur" gerum við okkur grein fyrir að sumir eru á móti þeim eða finna til óþæginda gagnvart þeim. Þú skalt óhikað setja í þeirra stað önnur hugtök sem virka fyrir þig í þínum persónulega bataferli. DRA tengist ekki neinum trúarbrögðum, né hefur skoðun á málefnum tengdum æðri veru. Tvíþætt bataáætlun okkar gundvallast á meginreglum persónufrelsis og valfrelsis.

[Prentvæn útgáfa]

Page Updated February 29, 2004


   

Dual Recovery Anonymous
World Services Central Office
P.O. Box 8107, Prairie Village, Kansas, USA 66208
Toll Free 1-877-883-2332


Starting a DRA Meeting in your community Helpful Information

Your first DRA meeting What is it like?


DRA Meeting Start-up Packet in PDF format, Adobe
® Acrobat® required , or one can be sent to you by regular mail by Filling out this form

A Spiritual Dimension Information about spirituality, religion, and the concept of a higher power in personal dual recovery

Download, View, or Print, Meeting Start-up Packet and other DRA literature.

Register Your DRA 12 Step Group's meetings online   Or mail in form. Adobe® Acrobat® required


 This web site is created and maintained by The DRA World Service Central Office, Dual Recovery Anonymous World Services Inc.

 Copyright © 1993 - 2004 by DRA World Services Inc. All rights reserved

[contact info]  [privacy statement]  [copyright notices]  [policy on links and linking]  [Webmaster]