Leið DRA að tvíþættum bata byggir á nokkrum
einföldum hugmyndum og sporum. Þetta eru tillögur að leið
til bata frekar en reglur. Þær hvetja okkur til að finna okkar
eigin persónulega bata, þann sem skiptir mestu máli. Þeim
er ætlað að styðja þau okkar sem vilja færa andlega
vídd í tvíþættan bata okkar. Unnið er eftir
DRA framkvæmdaáætluninni einn dag í einu. Hér
eru tillögurnar að tvíþættum bata:
- Í dag verð ég laus við áfengi og aðra
vímugjafa
- Í dag fylgi ég heilbrigðri áætlun um
stjórnun tilfinningalegs eða geðræns sjúkdóms
míns.
- Í dag iðka ég tólf reynsluspor.
Tólf reynsluspor Dual Recovery Anonymus* |
1 |
Við viðurkenndum vanmátt okkar gagnvart tvíþættri
truflun okkar, efnafíkn og tilfinningalegum eða geðrænum
sjúkdómi okkar, og að líf okkar væri orðið
óviðráðanlegt. |
2 |
Við fórum að trúa að æðri máttur,
samkvæmt skilningi okkar á honum, gæti gert okkur heilbrigð
að nýju. |
3 |
Við tókum þá ákvörðun að láta
líf okkar og vilja í umsjá æðri máttar
svo að hann gæti hjálpað okkur að endurreisa líf
okkar með jákvæðum og umhyggjusömum hætti. |
4 |
Við gerðum rækilega og óttalaust siðferðileg
reiknisskil í lífi okkar. |
5 |
Við viðurkenndum fyrir æðri mætti, sjálfum
okkur og annarri manneskju nákvæmt eðli galla okkar og kosta. |
6 |
Við vorum algerlega fús til að láta æðri
mátt fjarlægja alla galla okkar. |
7 |
Við báðum æðri mátt okkar í auðmýkt
að fjarlægja þessa galla og að hjálpa okkur að
styrkja kostina til að ná bata. |
8 |
Við gerðum skrá yfir alla þá sem við höfðum
skaðað og urðum fús til að bæta þeim öllum
skaðann. |
9 |
Við bættum skaðann milliliðalaust þar sem hægt
var svo framarlega sem það skaðaði engan. |
10 |
Við héldum áfram að gera siðferðileg reiknisskil
og þegar við höfðum rangt fyrir okkur viðurkenndum við
það tafarlaust jafnframt því sem við héldum
áfram að viðurkenna framfarir okkar í tvíþættum
bata. |
11 |
Við leituðumst við með bæn og íhugun að
styrkja vitundarsamband okkar við æðri mátt og báðum
aðeins um vitneskju um vilja æðri máttar okkur til handa
og hvernig skyldi framkvæma hann. |
12 |
Þar sem afleiðing þessara reynsluspora var andleg vakning,
reyndum við að bera þennan boðskap til annarra sem þjást
af tvíþættri truflun og fylgja þessum meginreglum í
öllu því sem við tókum okkur fyrir hendur. |
* Unnin út frá tólf reynslusporum Alcoholics Anonymus®.
Tólf reynsluspor AA eru endurprentuð og aðlöguð með
leyfi Alcohloics Anonymus Inc. Leyfi til að endurprenta og aðlaga tólf
reynsluspor segir ekki að AA hafi skoðað eða samþykkt þessa
útgáfu, né heldur að AA sé sammála skoðunum
sem koma fram hér. AA framkvæmdaáætlunin vinnur aðeins
að bata úr alkahólisma, - Notkun tólf reynsluspora í
tengslum við aðrar áætlanir og starfsemi sem sniðin er
eftir AA en fást við önnur vandamál gefur ekkert annað
til kynna.
|
[Prentvæn útgáfa]
Page Updated February 21, 2004 |
|