DRA eru sjálfstæð sjálfshjálparsamtök. Markmið
okkar er að hjálpa körlum og konum sem eru haldin tvíþættri
truflun. Við erum háð efnum og erum einnig einnig haldin tilfinningalegum
eða geðrænum sjúkdómum. Báðir kvillar hafa
áhrif á líf okkar á öllum sviðum; líkamlega,
sálrænt, félagslega og andlega.
Tilgangur DRA samtakanna er fyrst og fremst að hjálpa hvert öðru
að öðlast tvíþættan bata, að koma í
veg fyrir afturför eða fall og að bera boðskapinn um bata til
annarra sem eiga við tvíþætta truflun að stríða.
DRA samtökin hafa tvö inntökuskilyrði: löngun til að
hætta að drekka áfengi og nota önnur vímuefni og
löngun til að hafa stjórn á eigin tilfinningalegum eða
geðrænum sjúkdómi með heilbrigðum og uppbyggjandi
hætti.
DRA eru sjálfshjálparsamtök áhugamanna. Það
þurfa alltaf að vera skýr mörk á milli vinnu DRA
og vinnu fagmanna á sviði efnafíknar og geðheilbrigðis.
DRA samtökin hafa enga skoðun á málefnum tengdum greiningu,
meðferð, lyfjagjöf eða öðrum þeim málefnum
sem tengjast heilbrigðisstéttunum.
DRA tengist ekki neinum öðrum sjálfshjálparsamtökum
eða tólf spora samtökum. DRA samtökin hafa enga skoðun
á því hvernig aðrir taka á vandamálum
sem tengjast tvíþættri truflun og tvíþættum
bata. Við gagnrýnum aldrei viðleitni annarra.
|
[Prentvæn útgáfa]
Page Updated February 16, 2004 |
|