Til þess að verða félagi í Dual Recovery Anonymous
þarf ekki tilvísun frá fagmönnum og það er
óháð því að hve miklu leyti einstaklingurinn
hefur nýtt sér aðstoð fagmanna. Önnur erfðavenja
okkar er svohljóðandi: "DRA hefur tvö inntökuskilyrði:
Löngun til að hætta að drekka áfengi og nota aðra
vímugjafa og löngun til að hafa stjórn á tilfinningalegum
eða geðrænum sjúkdómi okkar á heilbrigðan
og uppbyggjandi hátt." DRA vill ekki takmarka möguleika einstaklingsins
til að komast í tvíþættan bata. Þess vegna
liggur valkosturinn um að gerast félagi í samtökunum hjá
viðkomandi einstaklingi. Ef tiltekinn einstaklingur telur að hann uppfylli
þessi tvö skilyrði, eftir að hafa lesið aðra erfðavenjuna,
þá má hann kalla sig félaga í DRA og sækja
bæði opna og lokaða DRA tólf spora fundi.
Á síðunni "Spurningar og svör" stendur eftirfarandi:
"Það eru til margar gerðir af tvíþættri
truflun. Ástæðan er sú að geðsjúkdómar
eru af ýmsum toga. Það eru einnig til margs konar mynstur á
misnotkun áfengis og fíkniefna. Þess vegna eru margs konar
gerðir af tvíþættri eða fjölþættri
truflun mögulegar." Þar kemur einnig fram að "DRA býður
velkomna karla og konur sem haldin eru tvíþættri truflun án
tillits til hve háð þau eru vímugjöfum sínum
eða hverjir þeir eru, hvernig geðsjúkdómssögu
þeirra er háttað eða hver færni þeirra er. Við
viðurkennum að við erum karlar og konur sem erum haldin mismunandi
sjúkdómum sem eru "engum að kenna". Einkenni þessara
sjúkdóma geta haft áhrif á getu okkar til að starfa
eðlilega og eiga samskipti við aðra."
Skjalið "Að sættast við breytileikann" fer nánar
í það á hve marga vegu þessir tveir mismunandi
sjúkdómar "sem eru engum að kenna" hafa áhrif
á líf okkar og bendir á sameiginlega þætti
sem gera samtök okkar að kærkomnum og öruggum stað fyrir
alla þá sem vilja öðlast tvíþættan
bata. DRA félagar koma úr öllum stéttum þjóðfélagsins,
samt eigum við sameiginlegar tilfinningar og reynslu. Við eigum samleið
í bataáætlun sem hjálpar okkur að vona, að
ráða fram úr aðstæðum og heila.
- Von: Sannfærandi von byrjar smám saman að þróast.
Þegar fólk vinnur eftir framkvæmdaáætlun um
bata og sækir fundi hittir það fólk sem hefur svipaða
reynslu að baki. Það fer að sjá að bati frá
tvíþættri truflun er mögulegur og hægt er að
auka gæði eigin lífs.
- Að ráða fram úr aðstæðum: Hæfileikar
til að ráða fram úr ýmsum málum taka að
þróast í tvíþættum bata. Fólk
byrjar að gera sér grein fyrir að það finni kannski
ekki lækningu við tvíþættri truflun sinni. En það
getur hins vegar lært að nota nýfundna hæfileika til
að ráða fram úr málum til að viðhalda batanum
og að halda líkunum á afturför eða bakfalli í
lágmarki. Fólk getur lært nýjar leiðir til að
ráða við geðsjúkdóm sinn á heilbrigðan
og uppbyggjandi hátt þegar það iðkar reynslusporin
og notar þann stuðning sem er að finna á fundum.
- Heilun: Fólk í tvíþættum bata getur byrjað
að upplifa ferli heilunar. Tvíþætt truflun getur smám
saman tekið toll af sjálfsmynd og sjálfstrausti fólks.
Síendurtekin geðræn einkenni og vaxandi vandamál og
afleiðingar geta gert það að verkum að fólki finnst
það muni aldrei verða eðlilegt aftur. Tvíþættur
bati býður upp á tækifæri til að heila og
byggja upp sjálfsmyndina sem gæti hafa brenglast eða orðið
óskýr. Hann býður líka upp á tækifæri
til að laga og bæta þau sambönd og samskipti sem gætu
hafa skaddast.
Tvíþætt truflun er algeng. Hún hefur áhrif
á 7 til 10 milljón fullorðna bandaríkjamenn á
hverju ári. (Engar sambærilegar tölur fyrirliggjandi um stöðuna
á Íslandi en ætti að ligga á bilinu 7 –
10 þúsund samkvæmt þessu). DRA félagar í
Bandaríkjunum koma alls staðar að úr þjóðfélaginu.
Fólk sem nýtir sér DRA og öðlast tvíþættan
bata á sér líf og fjölskyldur, vonir og drauma, skyldur
og þarfir. Það kann að vera feður, mæður,
afar, ömmur, kennarar, nemendur, smiðir, matreiðslumenn eða
framkvæmdastjórar. DRA býður velkomna karla og konur
sem haldin eru tvíþættri truflun án tillits til hve
háð þau eru vímugjöfum sínum eða hverjir
þeir eru, hvernig geðsjúkdómssögu þeirra
er háttað eða hver færni þeirra er. |