Hverjir eru DRA félagar |
Til þess að verða félagi í Dual Recovery Anonymous
þarf ekki tilvísun frá fagmönnum og það er
óháð því að hve miklu leyti einstaklingurinn
hefur nýtt sér aðstoð fagmanna. Önnur erfðavenja
okkar er svohljóðandi: "DRA hefur tvö inntökuskilyrði:
Löngun til að hætta að drekka áfengi og nota aðra
vímugjafa og löngun til að hafa stjórn á tilfinningalegum
eða geðrænum sjúkdómi okkar á heilbrigðan
og uppbyggjandi hátt." DRA vill ekki takmarka möguleika einstaklingsins
til að komast í tvíþættan bata. Þess vegna
liggur valkosturinn um að gerast félagi í samtökunum hjá
viðkomandi einstaklingi. Ef tiltekinn einstaklingur telur að hann uppfylli
þessi tvö skilyrði, eftir að hafa lesið aðra erfðavenjuna,
þá má hann kalla sig félaga í DRA og sækja
bæði opna og lokaða DRA tólf spora fundi. Á síðunni "Spurningar og svör" stendur eftirfarandi: "Það eru til margar gerðir af tvíþættri truflun. Ástæðan er sú að geðsjúkdómar eru af ýmsum toga. Það eru einnig til margs konar mynstur á misnotkun áfengis og fíkniefna. Þess vegna eru margs konar gerðir af tvíþættri eða fjölþættri truflun mögulegar." Þar kemur einnig fram að "DRA býður velkomna karla og konur sem haldin eru tvíþættri truflun án tillits til hve háð þau eru vímugjöfum sínum eða hverjir þeir eru, hvernig geðsjúkdómssögu þeirra er háttað eða hver færni þeirra er. Við viðurkennum að við erum karlar og konur sem erum haldin mismunandi sjúkdómum sem eru "engum að kenna". Einkenni þessara sjúkdóma geta haft áhrif á getu okkar til að starfa eðlilega og eiga samskipti við aðra." Skjalið "Að sættast við breytileikann" fer nánar í það á hve marga vegu þessir tveir mismunandi sjúkdómar "sem eru engum að kenna" hafa áhrif á líf okkar og bendir á sameiginlega þætti sem gera samtök okkar að kærkomnum og öruggum stað fyrir alla þá sem vilja öðlast tvíþættan bata. DRA félagar koma úr öllum stéttum þjóðfélagsins, samt eigum við sameiginlegar tilfinningar og reynslu. Við eigum samleið í bataáætlun sem hjálpar okkur að vona, að ráða fram úr aðstæðum og heila.
Tvíþætt truflun er algeng. Hún hefur áhrif á 7 til 10 milljón fullorðna bandaríkjamenn á hverju ári. (Engar sambærilegar tölur fyrirliggjandi um stöðuna á Íslandi en ætti að ligga á bilinu 7 – 10 þúsund samkvæmt þessu). DRA félagar í Bandaríkjunum koma alls staðar að úr þjóðfélaginu. Fólk sem nýtir sér DRA og öðlast tvíþættan bata á sér líf og fjölskyldur, vonir og drauma, skyldur og þarfir. Það kann að vera feður, mæður, afar, ömmur, kennarar, nemendur, smiðir, matreiðslumenn eða framkvæmdastjórar. DRA býður velkomna karla og konur sem haldin eru tvíþættri truflun án tillits til hve háð þau eru vímugjöfum sínum eða hverjir þeir eru, hvernig geðsjúkdómssögu þeirra er háttað eða hver færni þeirra er. |
Copyright © Dual Recovery Anonymous World Services Inc. P.O. Box 8107, Prairie Village, Kansas, USA 66208