Nýliðar og gestir kunna að spyrja sig: Getur DRA framkvæmdaáætlunin
hjálpað mér þrátt fyrir einkennin sem ég
er með? Slíkar tilfinningar eru ekki óalgengar. Við þurfum
að hjálpa nýliðum að átta sig á að
það er hægt að vera með ýmiss konar einkenni
með tvíþætta truflun. Það er engin ein gerð
af tvíþættri truflun. Við erum karlar og konur sem eigum
það öll sameiginlegt að þjást af mismunandi
sjúkdómum sem eru "engum að kenna". Einkenni þessarra
sjúkdóma geta haft áhrif á getu okkar til að
starfa eðlilega og eiga samskipti við aðra.
Sum okkar óttuðust að við værum að verða svo
veik að engin von væri fyrir okkur. Við fórum að trúa
að við yrðum aldrei "venjuleg" aftur. Mörg okkar
upplifðu mikla skömm og sektarkennd. Við trúðum að
tilfinningalegur eða geðrænn sjúkdómur okkar og
efnafíkn væri okkur sjálfum að kenna. Sum okkar hafa
orðið laumuleg. Við reyndum að halda drykkjunni og fíkniefnanotkuninni
leyndri og seinna meir fundu sum okkar þörf fyrir að halda batanum
og reynslusporunum leyndum. Okkur fannst líka að geðrænn
sjúkdómur okkar yrði að vera leyndarmál, sérstaklega
ef að lyfseðilskyld lyf voru hluti af bataáætlun okkar.
Okkur reyndist um megn að finna fleiri aðferðir til að vernda
tilfinningar okkar og sjálfsálit og að vernda okkur gegn áliti
umhverfis okkar. Mörg okkar fóru smám saman inn í
skáp afneitunar. Ef það eru einhverjir á meðal okkar
sem finnst þeir hafa búið í þessum skáp,
þá bjóðum við þá velkomna. Við
viljum að þú vitir að ótti, einangrun og launung
þurfa ekki lengur að vera hluti af lífi þínu!
!
|
[Prentvæn útgáfa]
Page Updated February 29, 2004 |
|