Leið DRA að tvíþættum bata byggir á nokkrum
einföldum hugmyndum og sporum. Þetta eru tillögur að leið
til bata frekar en reglur. Þær hvetja okkur til að finna okkar
eigin persónulega bata, þann sem skiptir mestu máli. Þeim
er ætlað að styðja þau okkar sem vilja færa andlega
vídd í tvíþættan bata okkar. Unnið er eftir
DRA framkvæmdaáætluninni einn dag í einu. Hér
eru tillögurnar að tvíþættum bata:
Tólf reynsluspor Dual Recovery Anonymus* |
1 | Við viðurkenndum vanmátt okkar gagnvart tvíþættri truflun okkar, efnafíkn og tilfinningalegum eða geðrænum sjúkdómi okkar, og að líf okkar væri orðið óviðráðanlegt. |
2 | Við fórum að trúa að æðri máttur, samkvæmt skilningi okkar á honum, gæti gert okkur heilbrigð að nýju. |
3 | Við tókum þá ákvörðun að láta líf okkar og vilja í umsjá æðri máttar svo að hann gæti hjálpað okkur að endurreisa líf okkar með jákvæðum og umhyggjusömum hætti. |
4 | Við gerðum rækilega og óttalaust siðferðileg reiknisskil í lífi okkar. |
5 | Við viðurkenndum fyrir æðri mætti, sjálfum okkur og annarri manneskju nákvæmt eðli galla okkar og kosta. |
6 | Við vorum algerlega fús til að láta æðri mátt fjarlægja alla galla okkar. |
7 | Við báðum æðri mátt okkar í auðmýkt að fjarlægja þessa galla og að hjálpa okkur að styrkja kostina til að ná bata. |
8 | Við gerðum skrá yfir alla þá sem við höfðum skaðað og urðum fús til að bæta þeim öllum skaðann. |
9 | Við bættum skaðann milliliðalaust þar sem hægt var svo framarlega sem það skaðaði engan. |
10 | Við héldum áfram að gera siðferðileg reiknisskil og þegar við höfðum rangt fyrir okkur viðurkenndum við það tafarlaust jafnframt því sem við héldum áfram að viðurkenna framfarir okkar í tvíþættum bata. |
11 | Við leituðumst við með bæn og íhugun að styrkja vitundarsamband okkar við æðri mátt og báðum aðeins um vitneskju um vilja æðri máttar okkur til handa og hvernig skyldi framkvæma hann. |
12 | Þar sem afleiðing þessara reynsluspora var andleg vakning, reyndum við að bera þennan boðskap til annarra sem þjást af tvíþættri truflun og fylgja þessum meginreglum í öllu því sem við tókum okkur fyrir hendur. |
|
Copyright © Dual Recovery Anonymous World Services Inc. P.O. Box 8107, Prairie Village, Kansas, USA 66208