Velkomin/n í Dual Recovery Anonymus

Verið velkomin á upplýsingavef DRA

Velkomin/n í Dual Recovery Anonymus
 

Dual Recovery Anonymus eru sjálfstæð, sjálfshjálparsamtök áhugamanna með tvíþætta greiningu með tólfsporavinnu að leiðarljósi. Markmið okkar er að hjálpa körlum og konum sem eru haldin tvíþættum sjúkdómi. Við erum haldin efnafíkn og við erum einnig haldin tilfinningalegum eða geðrænum sjúkdómi. Báðir kvillarnir hafa áhrif á líf okkar á öllum sviðum, líkamlega, sálrænt, félagslega og andlega.

Dual Recovery Anonymus eru samtök karla og kvenna sem hittast til að styðja hvert annað í sameiginlegum bata frá tveimur sjúkdómum sem eru engum að kenna: Tilfinningalegum eða geðrænum sjúkdómi og efnafíkn.

Dual Recovery Anonymus er framkvæmdaáætlun um sjálfshjálp. Hún byggir á meginsjónarmiðum reynslusporanna 12 og reynslu karla og kvenna í bata sem eru með tvíþætta greiningu. DRA framkvæmdaáætlunin hjálpar okkur bæði að ná bata frá efnafíkn okkar og tilfinningalegum og geðrænum sjúkdómi með því að einbeita okkur að forðast bakföll og að bæta lífsgæði okkar með virkum hætti. Með því að eiga samfélag um gagnkvæman stuðning lærist okkur að forðast hættuna á að snúa aftur í áfengis- og lyfjaneyslu sem og að draga úr einkennum tilfinningalegs og geðræns sjúkdóms okkar.

Það eru aðeins tvö inngönguskilyrði:

  • Löngun til að hætta að drekka áfengi og nota aðra vímugjafa.
  • Löngun til að hafa stjórn á tilfinningalegum eða geðrænum sjúkdómi okkar á heilbrigðan og uppbyggjandi hátt.

DRA félagar eru hvattir til að byggja sterkt stuðningsnet á persónulegum grunni. Það stuðningsnet getur verið samsett af ýmsum aðilum, s.s. meðferðaraðilum á sviði efnafíknar og geðheilbrigðis, fagfólki á sviði heilbrigðis- og félagsþjónustu og aðilum sem veita andlega eða trúarlega aðstoð, auk annara 12 spora- eða sjálfshjálparhópa. DRA hefur enga skoðun á því hvernig aðrir taka á vandamálum sem tengjast tvíþættri truflun eða tvíþættum bata. Við gefum ekki ráð varðandi einstök meðferðarúrræði við hinum ýmsu gerðum tilfinningalegra eða geðrænna sjúkdóma. En við deilum með hvert öðru persónulegri reynslu okkar af þeim leiðum sem við höfum farið til að læra að fást við einkenni okkar með því að nota reynslusporin 12 í daglegu lífi okkar.

DRA er framkvæmdaáætlun áhugamanna um sjálfshjálp. Það þurfa alltaf að vera skýr mörk á milli vinnu DRA og vinnu fagmanna á sviði efnafíknar og geðheilbrigðis. Inngangsorðum DRA og hinum tólf erfðavenjum okkar er ætlað það hlutverk að vera leiðarljós fyrir fundi, deildir, nefndir, og þjónustustofnanir, þannig að þær starfi með þeim hætti að það stuðli að bata allra félaga í samtökum okkar. Erfðavenjur okkar eru tillögur sem hjálpa DRA í heild sinni til að þjóna megintilgangi sínum og viðhalda því leiðarljósi sem lagt var upp með.

Leið Dual Recovery Anonymous í tvíþætta bataferlinu byggir á nokkrum einföldum hugmyndum og sporum. Þetta eru fremur tillögur að leið til bata en reglur. Þær hvetja okkur til að finna okkar eigið persónulega bataferli, það bataferli sem sem er innihaldsríkast. Þeim er ætlað styðja þau okkar sem vilja færa andlega vídd í tvíþættan bata sinn. Unnið er eftir DRA framkvæmdaáætluninni einn dag í einu. Hér eru tillögurnar að tvíþættum bata:

  • Í dag mun ég vera laus við áfengi og aðra vímugjafa.
  • Í dag mun ég fylgja heilbrigðri áætlun um stjórnun tilfinningalegs eða geðræns sjúkdóms míns.
  • Í dag mun ég iðka tólf reynsluspor eftir betstu getu.

Megintilgangur DRA er að hjálpa hvert öðru að ná tvíþættum bata, að koma í veg fyrir afturför eða fall og að bera boðskapinn um bata til annarra sem þjást af tvíþættri truflun.

Copyright © Dual Recovery Anonymous World Services Inc.  P.O. Box 8107, Prairie Village, Kansas, USA 66208