Sjúkdómur sem er engum að kenna

Sjúkdómur sem er engum að kenna

Sjúkdómur sem er engum að kenna
 
Einstaklingur með tvíþætta truflun er haldin tveimur líffræðilegum sjúkdómum. Þeir eru ekki viðkomandi einstaklingi að kenna. Hann gerði ekkert til að orsaka þá. Hann valdi sér ekki það hlutskipti að vera undir áhrifavaldi þeirra. Og hann á ekki skilið að vera haldinn þeim. Báðir sjúkdómarnir eru læknisfræðilega skilgreindir með einkenni sem unnt er að byggja greiningu á. Með viðeigandi læknismeðferð og stuðningi sjálfshjálparhópa eins og Dual Recovery Anonymous getur einstaklingur með tvíþætta greiningu lært að axla ábyrgð á því að vinna með báða sjúkdóma sína á jákvæðan og uppbyggjandi hátt.

Geðsjúkdómar eru truflanir í heilastarfseminni sem geta raskað husgun, tilfinngingum, hugarástandi og hæfileikanum á að samsama sig við aðra. Á sama hátt og sykursýki er truflun í brisi sem ef til vill kallar á lyfjagjöf til að stjórna sykurmagni í blóði, þá er geðsjúkdómur truflun í heila sem ef til vill kallar á lyfjagjöf til að stilla efnajafnvægi í heilanum.

Einstaklingar sem haldnir eru efnafíkn velja sér ekki það hlutskipti að vera alkóhólistar eða fíklar – þeir eru það bara. Því miður er það nánast ómögulegt að vita hvort tiltekinn einstaklingur er haldinn efnafíkn fyrr en hann byrjar að neyta áfengis eða fíkniefna. Þegar svo þeim verður það ljóst að þeir eiga við vandamál að stríða þá eiga þeir ekki lengur nokkurra kosta völ og þeir hafa glatað getunni að hætta á eigin spýtur.

Hvorugur sjúkdómurinn stafar af persónuleikagalla eða skorti á siðferðisþreki. Ekki er heldur hægt að vinna bug á þeim með því að "taka sig nú ærlega saman í andlitinu" eða beita viljastyrk. Báðir sjúkdómarnir láta sig einu varða um aldur, kynferði, kynþátt, greindarvísítölu, trú eða efnahagslega stöðu. Því miður umlykur félagsleg smán báða sjúkdómana og rangar upplýsingar um þá eru á sveimi meðal almennings og þetta aftrar fóki frá því að fá þá hjálp sem það þarfnast. Þetta eru raunverulegir "sjúkdómar sem eru engum að kenna" og sérhver nálgun, sem skapar óraunsæja sektarkennd og skömm, kemur í veg fyrir bata.

Copyright © Dual Recovery Anonymous World Services Inc.  P.O. Box 8107, Prairie Village, Kansas, USA 66208