Tvíþætt greining |
Tvíþætt greining á íslensku er það
sem hefur á ensku verið kallað Dual Diagnosis. Á ensku hefur
Dual Diagnosis verið notað jöfnum höndum við: co-morbidity,
co-occurring illnesses, concurrent disorders, comormid disorders, co-occurring
disorder, dual disorder eða double trouble.
Einstaklingar með tvíþætta greiningu þurfa að
takast á við margþætt geðfélagsleg (psychosocial)
vandamál og kunna að vera haldnir fjölþættum sjúkdómum
(fleirum en tveimur) sem virka hver á annan. Dual Recovery Anonymous skilgreinir merkinguna á "tvíþættri
greiningu" sem það, að hafa tvær aðgreindar greiningar
sem eru þó nátengdar: Tvíþætt greining á við um það, þegar
einstaklingur er bæði haldinn efnafíkn og tilfinningalegum
eða geðrænum sjúkdómi. Báðir sjúkdómar
hafa áhrif á einstaklinginn líkamlega, sálrænt,
félagslega og andlega. Hvor sjúkdómur hefur einkenni sem
trufla getu einstaklingsins til eðlilegrar virkni og að samsama sig
við sjálfan sig og aðra. Viðkomandi einstaklingur er ekki
aðeins undir áhrifum þessara tveggja aðskildu sjúkdóma,
því sjúkdómarnir hafa áhrif hvor á
annan. Sjúkdómarnir kunna að hafa neikvæð áhrif
hvor á annan og hvor þeirra veikir mótstöðu hins
gagnvart bakfalli. Stundum skarast einkenni þeirra og geta jafnvel einkenni
annars sjúkdómsins hulið einkenni hins. Þannig getur
bæði greining og meðferð orðið erfiðari en ella. Maður getur af fullri einlægni reynt að ná bata frá
öðrum sjúkdómnum og ekki viðurkennt hinn. Þegar
maður vanrækir geðsjúkdóm sinn, getur sjúkdómurinn
náð sér á strik aftur. Endurvirkni hans getur svo skapað
þörf fyrir "sjálfslækningu" með lyfjanotkun.
Með tímanum geta misheppnaðar tilraunir við að ná
bata á báðum vígstöðvum leitt til þess
að viðkomandi fær á tilfinninguna að hann sé
misheppnaður og eigi ekki samleið með öðrum. Ef til vill
verður skaðinn mestur á sjálfsmynd viðkomandi einstaklings. Tvíþætt greining spannar vítt svið. Ástæðan
er sú að geðsjúkdómar eru af ýmsum toga.
Það eru einnig til margs konar mynstur á misnotkun áfengis
og fíkniefna. Þess vegna eru margs konar gerðir af tvíþættri
eða fjölþættri truflun mögulegar. Tvíþættri greiningu geta mögulega fylgt margvísleg
vandamál. Til dæmis: Til annara vandamála og afleiðinga sem tengjast tvíþættri
greiningu eru: Uppi kunna að vera mismunandi túlkanir á því
hvað "tvíþætt greining" er.
DRA lítur svo á að ekki skipti máli hversu lengi eða
hversu þungt við höfum verið haldin af öðrum hvorum
sjúkdóma okkar sem engum er um að kenna. Til að vera félagi
í samtökum Dual Recovery Anonymus þarf ekki tilvísun
sérfræðings og einu gildir hversu mikið einstaklingurinn
hefur nýtt sér félags- og heilbrigðisþjónustu.
Önnur erfðavenja okkar er svohljóðandi: "DRA hefur
tvö inntökuskilyrði: Löngun til að hætta að
drekka áfengi og nota aðra vímugjafa og löngun til að
hafa stjórn á tilfinningalegum eða geðrænum sjúkdómi
okkar á heilbrigðan og uppbyggjandi hátt." Einstaklingur er í tvíþættum bata þegar hann
fylgir á virkan hátt bataáætlun sem tekur til bataþarfa
hans. Bataþarfa fyrir efnafíkn annars vegar og geðsjúkdóm
hins vegar. |
Copyright © Dual Recovery Anonymous World Services Inc. P.O. Box 8107, Prairie Village, Kansas, USA 66208