Tólf erfðavenjur Dual Recovery Anonymus

Tólf erfðavenjur Dual Recovery Anonymus

Tólf erfðavenjur Dual Recovery Anonymus
 
1 Meginmarkmið DRA er að bera boðskapinn um bata til karla og kvenna sem þjást af tvíþættri truflun.
2 DRA hefur tvö inntökuskilyrði: Löngun til að hætta að drekka áfengi og nota aðra vímugjafa, og löngun til að hafa stjórn á tilfinningalegum eða geðrænum sjúkdómi okkar á heilbrigðan og uppbyggjandi hátt.
3 Við bjóðum fólk velkomið, hverrar trúar sem það er. Framkvæmdaáætlun okkar býður upp á persónulegt frelsi og frelsi til að velja.
4 Deildir okkar og þjónustustarf byggja á meginreglum tólf reynsluspora DRA.
5 Hver deild er sjálfstæð svo að betur sé hægt að þjóna bataþörfum félaga okkar. Við tökum tillit til velfarnaðar og einingar allra deilda og DRA í heild.
6 Til að viðhalda meginmarkmiði okkar forðumst við allar utanaðkomandi truflanir. Við þurfum ekki að vera viðriðin fjármálavafstur, lána nafn DRA utanaðkomandi starfsemi og málefnum eða dragast inn í opinber mál.
7 Sérhver deild ætti að vera fjárhagslega sjálfstæð.
8 DRA eru sjálfshjálparsamtök sjálfboðaliða. Til þess að inna af hendi þjónustustarf okkar megum við ráða sérstakt starfsfólk, mynda nefndir og skipuleggja verkefni.
9 Einstaklingsbundinn tvíþættur bati okkar veltur á einingu DRA. Við berum áfram boðskapinn í gegnum persónulegan bata okkar og þjónustustörf.
10 DRA eru samtök áhugamanna. Við bjóðum ekki upp á þjónustu á sviði efnafíknar, geðheilsu eða annarrar félagsþjónustu. DRA hefur enga skoðun á réttri notkun lyfja eða öðrum aðferðum til að stjórna einkennum okkar.
11 Í DRA tökum við sameiginlega þátt í tvíþættum bata. Erfðavenjur okkar og þjónustustarf hjálpar okkur að viðhalda heilindum framkvæmdaæáætlunarinnar, að sjá fyrir öðrum og að styrkja einingu DRA heildarinnar.
12 Persónuleg nafnleynd er réttur allra DRA félaga. Við ástundum nafnleynd á vettvangi fjölmiðla.

Copyright © Dual Recovery Anonymous World Services Inc.  P.O. Box 8107, Prairie Village, Kansas, USA 66208